Uppsetningu og tengingu baðkera

Við getum séð um allt sem viðkemur uppsetningu og tengingu heitra og kaldra potta.

Við hönnum og smíðum umgjörðina svo potturinn fái notið sín sem best á sólpallinum þínum og auki á fegurð hans og sælu.

Sífellt meira úrval hefur færst i vöxt af heitum pottum á íslandi. Einnig eru kaldir pottar farnir að vera æ algengari í íslenskri garðmenningu. Þegar hugað er að uppsetningu heitra- og kaldra potta þarf að vera vel áttaður á veðri, vindum og sólarafstöðu í garðinum. Við hjá Garðaþjónustu Reykjavíkur förum alltaf vel yfir aðstæður með viðskiptavinum okkar og göngum úr skugga um að staðsetning og notagildi pottanna sé í hávegum höfð.

Svo að sjálfsögðu aðstoðum við einnig við hönnunina ef þess er óskað. Þú getur haft samband við okkur í síma 783 4717

uppsetningu og tengingu baðkera